Leikmenn Marseille eru látnir gista á æfingasvæði félagsins en Habib Beye stjóri franska liðsins reynir allt til að snúa gengi þess við.
Marseille tapaði 3-0 gegn Nantes og eru forráðamenn félagsins sagðir reiðir yfir hugarfarinu í leikmannahópnum en ólga hefur verið bak við tjöldin.
Marseille tapaði 3-0 gegn Nantes og eru forráðamenn félagsins sagðir reiðir yfir hugarfarinu í leikmannahópnum en ólga hefur verið bak við tjöldin.
Mason Greenwood og félagar eru nú í sjöunda sæti frönsku deildarinnar og aðeins unnið einn leik síðan 13. maí. Meistaradeildarvonirnar hafa fuðrað upp.
Að láta leikmenn dvelja á æfingasvæðinu er örvæntingarfull tilraun til að fá liðið til að rétta úr kútnum og ná Evrópusæti.
Lögfræðingurinn Pierre Vignal sem starfar í París segir hinsvegar við RMC að þessi framkoma við leikmenn gæti flokkast sem ólögleg samkvæmt vinnulöggjöf.
„Frá lagalegu sjónarmiði erum við að horfa upp á takmörkun á grundvallarfrelsi. Ef við myndum taka sem dæmi að þetta yrði gert hjá venjulegu fyrirtæki yrði þetta talið algjörlega út úr kortinu," segir Vignal.
Marseille hefur fengið harða gagnrýni frá fjölmiðlum undanfarnar vikur og þar hefur Greenwood, sem er fyrrum sóknarmaður Manchester United, alls ekki verið undanskilinn. Hann og liðsfélagar hans fengu allir 0 í einkunn eftir tapið gegn Nantes.
„Hneykslanleg frammistaða frá upphafi til enda. Hann hélt að það væri í lagi að rölta þegar hann missti boltann, kvartaði í samherjum sínum ef þeir sendu ekki á hann og líkamstjáning hans var eins og hann væri í fjölleikahúsi. Eina sem hann nennti að gera var að reima á sig skóna," segir í umsögn La Provence um Greenwood.
Fjölmiðillinn gagnrýndi aðra fyrrum leikmenn úr ensku úrvalsdeildinni sem spila fyrir Marseille; þar á meðal Pierre-Emerick Aubameyang fyrrum leikmann Arsenal. Um hann var skrifað að hann hefði sent oftar á Nantes en samherja sína.



