Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
   þri 05. maí 2026 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arbeloa sér ekkert að hegðun Mbappé
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Litlar sem engar líkur eru á því að Álvaro Arbeloa verði ráðinn sem þjálfari Real Madrid eftir að hafa tekið við sem bráðabirgðaþjálfari í janúar.

Arbeloa elskar Real Madrid og var hjá félaginu í tíu ár á ferli sínum sem atvinnumaður í fótbolta og hefur þjálfað unglingalið félagsins á undanförnum árum. Hann tók svo við B-liði Real Madrid í fyrra áður en hann fékk samning sem bráðabirgðaþjálfari aðalliðsins.

„Það særir mig þegar ég sé andstæðingana hlaupa meira heldur en við í leikjum. Við þurfum að sjá meiri skuldbindingu frá leikmönnum ef við viljum vera fullkomið lið. Hæfileikar einir og sér eru ekki nóg. Þetta er Real Madrid. Leikmenn verða að skilja hvað það þýðir að spila fyrir Real Madrid," sagði Arbeloa eftir sigur Real Madrid gegn Espanyol um helgina og var í kjölfarið spurður út í Vinícius Júnior sem skoraði bæði mörkin í sigrinum.

„Ég er alltaf mjög þakklátur í garð Vini, hann gefur sig allan í hvern einasta leik. Ég er stoltur að hafa hann sem leikmann. Hann er stórhættulegur með boltann, hágáfaður leikmaður og alvöru leiðtogi."

Kylian Mbappé var ekki með í leiknum vegna meiðsla og vonast Arbeloa til að vera búinn að endurheimta frönsku stórstjörnuna fyrir El Clásico leikinn gegn Spánarmeisturum Barcelona. Meiddur Mbappé var myndaður í fríi með kærustu sinni og vakti það gagnrýni frá einhverjum fjölmiðlum á Spáni.

„Læknateymið fylgist náið með meiddum leikmönnum og vinna í nánu samstarfi. Leikmenn mega gera það sem þeir vilja í frítíma sínum, ég blanda mér ekki í það. Ég sé ekkert að þessari hegðun."

Real Madrid er í öðru sæti spænsku deildarinnar, ellefu stigum á eftir toppliði Barcelona þegar fjórar umferðir eru eftir. Liðið datt úr leik gegn FC Bayern í Meistaradeildinni og var afar óvænt slegið út af Albacete í spænska bikarnum.

   05.05.2026 15:44
Mbappe segir fréttir af ósætti við þjálfarateymið blásnar upp

Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 35 30 1 4 91 31 +60 91
2 Real Madrid 35 24 5 6 70 33 +37 77
3 Villarreal 35 21 6 8 65 40 +25 69
4 Atletico Madrid 36 20 6 10 60 39 +21 66
5 Betis 36 14 15 7 56 44 +12 57
6 Celta 36 13 11 12 51 47 +4 50
7 Getafe 35 13 6 16 28 36 -8 45
8 Real Sociedad 35 11 11 13 54 55 -1 44
9 Athletic 35 13 5 17 40 51 -11 44
10 Vallecano 35 10 13 12 36 42 -6 43
11 Osasuna 36 11 9 16 43 47 -4 42
12 Valencia 35 11 9 15 38 50 -12 42
13 Sevilla 35 11 7 17 43 56 -13 40
14 Elche 36 9 12 15 47 56 -9 39
15 Mallorca 35 10 9 16 43 52 -9 39
16 Espanyol 35 10 9 16 38 53 -15 39
17 Girona 35 9 12 14 37 52 -15 39
18 Levante 36 10 9 17 44 59 -15 39
19 Alaves 35 9 10 16 41 54 -13 37
20 Oviedo 35 6 11 18 26 54 -28 29
Slapp
banner