Steven Caulker, fyrrum spilandi aðstoðarþjálfari Stjörnunnar, er að gera góða hluti sem aðstoðarþjálfari Konyaspor í Tyrklandi og er á leið í bikarúrslit.
Caulker var ráðinn sem aðstoðarþjálfari tyrkneska liðsins um miðjan febrúar en samningi hans við Stjörnunnar var rift fyrir áramót. Hann var orðaður við stjórastarf ÍBV en Aleksandar Linta hreppti stöðuna.

Það er óhætt að segja það að Konyaspor hafi farið fjallabaksleiðina í úrslitin en liðið vann Fenerbahce í 8-liða úrslitum og Besiktas í undanúrslitum.
Liðið mætir annað hvort Genclerbirligi eða Trabzonspor í úrslitaleiknum sem fer fram sunnudaginn 24. maí.
Konyaspor siglir lignan sjó í deildinni og er í 9. sæti nú þegar tvær umferðir eru eftir.