Sky Sports greinir frá því að þrjú ónefnd úrvalsdeildarfélög séu áhugasöm um að tryggja sér þjónustu miðjumannsins Fisayo Dele-Bashiru sem leikur fyrir Lazio.
Dele-Bashiru er með tvö ár eftir af samningi við ítalska félagið sem vill gera nýjan samning við hann í sumar.
Dele-Bashiru er 25 ára gamall og ólst upp hjá Manchester City. Hann lék fyrir Sheffield Wednesday og Hatayspor áður en hann gekk í raðir Lazio.
Talið er að leikmaðurinn sé falur fyrir 15 til 20 milljónir evra.
Heimildarmenn Sky sem eru nánir Dele-Bashiru segja að nígeríska landsliðsmanninum líði vel hjá Lazio, en sé opinn fyrir félagaskiptum í ensku úrvalsdeildina.




