Arsenal með augastað á Rogers - PSG veitir Liverpool samkeppni - Grealish fær annað tækifæri hjá City
banner
   fim 07. maí 2026 10:46
Kári Snorrason
Kenny Hogg yfirgefur Njarðvík eftir níu ára dvöl - Sá markahæsti í sögunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Skoski sónkarmaðurinn Kenneth Hogg hefur yfirgefið Njarðvík eftir níu ára dvöl hjá félaginu.

Hogg hefur ekki verið hluti af Njarðvíkurliðinu í vetur og segir í tilkynningu félagsins að ákvörðunin um að ljúka samstarfinu hafi verið tekið í mesta bróðerni.

Kenny er markahæsti leikmaður í sögu Njarðvíkur með 75 mörk í 227 leikjum og jafnframt þriðji leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins.

Hann verður heiðraður fyrir fyrsta heimaleik Njarðvíkur sem er á morgun gegn Fylki og hefst klukkan 19:15.


Slapp
banner
banner