Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 13:39
Elvar Geir Magnússon
Glasner: Þeir vilja hunang aftur en ekki lárperu
Oliver Glasner, stjóri Palace.
Oliver Glasner, stjóri Palace.
Mynd: EPA
Crystal Palace tekur á móti Shaktar Donetsk á morgun í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar. Palace er í ljómandi fínum málum 3-1 yfir í einvíginu.

Oliver Glasner, stjóri Palace, lætur af störfum hjá félaginu eftir tímabilið og vill kveðja með Evróputitli. Stuðningsmenn Palace fögnuðu bikarmeistaratitli í fyrra og vilja annan bikar í skápinn.

„Stuðningsmenn vilja hunang aftur. Þeir verða ekki ánægðir með lárperu (avókadó)," sagði Glasner á fréttamannafundi í dag.

„Fyrir nokkrum árum var svo fjarlægt fyrir Crystal Palace að spila úrslitaleik í Evrópu. Nú er þetta svo nálægt, og snýst um að grípa það. Við getum haldið áfram að skrifa söguna og gefa stuðningsmönnum augnablik sem þeir munu aldrei gleyma."

„Ég er sjálfur mjög spenntur, ef ég væri það ekki þá væri ég í röngu starfi. Ef þú hættir að vera spenntur er það skýr vísbending um að þú eigir að segja þetta gott. Það sem þessir leikmenn hafa gert fyrir Crystal Palace er magnað."

Ef Palace klárar einvígið mun liðið mæta Strasbourg eða Rayo Vallecano í úrslitaleik keppninnar. Spænska liðið leiðir það einvígi 1-0 en á seinni leikinn á útivelli.
Slapp
banner
banner
banner