Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 17:00
Kári Snorrason
Magni Fannberg orðaður við Malmö
Magni lét af störfum sem yfirmaður fótboltamála hjá Norrköping í fyrra.
Magni lét af störfum sem yfirmaður fótboltamála hjá Norrköping í fyrra.
Mynd: Norrköping
Magni Fannberg er sagður koma til greina í starf yfirmanns fótboltamála hjá Malmö en sænska stórveldið leitar nú að nýjum manni í starfið.

Magni er án starfs eftir að hann lét af störfum sem yfirmaður fótboltamála hjá Norrköping á síðasta ári.

Samkvæmt sænska miðlinum Aftonbladet hefur félagið verið í sambandi við Magna og Lars Petter Andressen, sem gegnir sömu stöðu hjá Tromsö.

Daníel Tristan Guðjohnsen og Arnór Sigurðsson eru leikmenn Malmö. Félagið er með tíu stig eftir sex umferðir.

Malmö vann deildina 2024 en á síðasta tímabili endaði liðið í 6. sæti Allsvenskunar.
Slapp
banner
banner