Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 11:24
Elvar Geir Magnússon
Barcelona boðið að kaupa Fofana
Mynd: EPA
Barcelona hyggst bæta varnarlínu sína í sumar og umboðsmenn Wesley Fofana hjá Chelsea hafa sett sig í samband við katalónska félagið og boðið því að kaupa franska leikmanninn.

Fofana hefur verið mikið á meiðslalistanum síðan Chelsea keypti hann frá Leicester 2022. Hann spilaði ekkert tímabilið 2023-24 og spilaði aðeins fjórtán leiki á síðasta ári.

Á þessu tímabili hefur hann spilað meira, 34 leiki, skorað eitt mark og fengið eitt rautt. Alls eru þetta 2.400 mínútur spilaðar og 27 byrjunarliðsleikir.

Talið er að Börsungar gætu fengið Fofana fyrir um 30 milljónir evra en ef þeir reyna að fá hann er talið að þeir reyni að fá hann á láni með möguleika á framtíðarkaupum.

Alessandro Bastoni, varnarmaður Inter, er efstur á óskalista Barcelona yfir varnarmenn en það er óvissa um hvort félagið hafi fjárhagslegt bolmagn til að fá hann.
Slapp
banner
banner