Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 22:14
Ívan Guðjón Baldursson
Saka og Rice: Þetta er algjör sturlun
Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins.
Bukayo Saka skoraði eina mark leiksins.
Mynd: EPA
Hinn óþreytandi Declan Rice var út um allt gegn Atlético.
Hinn óþreytandi Declan Rice var út um allt gegn Atlético.
Mynd: EPA
19 ára Myles Lewis-Skelly átti flottan leik á miðjunni.
19 ára Myles Lewis-Skelly átti flottan leik á miðjunni.
Mynd: EPA
Bukayo Saka og Declan Rice svöruðu spurningum eftir sigur Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.

Saka er nýlega kominn til baka úr meiðslum og skoraði eina mark leiksins á 44. mínútu þegar hann fylgdi marktilraun Leandro Trossard eftir með marki.

„Þetta er svo fallegt, þið getið séð hvað þetta þýðir fyrir okkur og fyrir stuðningsmennina," sagði Saka í miðjum fagnaðarlátum. „Við erum svo ánægðir, þetta er hægara sagt en gert. Það var mikið undir fyrir bæði lið og þetta var mjög þýðingarmikill leikur. Við stjórnuðum þessu vel og komum okkur í úrslit. Þetta er búin að vera rosaleg stemning hérna allt frá því að við stigum fæti upp í rútuna. Stuðningsmenn hafa verið frábærir, ég hef aldrei séð neitt í líkindum við þetta.

„Auðvitað er pressa á okkur á lokakafla tímabilsins en svona er fótboltinn. Ef þú höndlar ekki pressuna þá áttu ekki heima á þessu gæðastigi. Þetta er falleg saga og vonandi endar þetta vel í Búdapest."


Rice var valinn sem besti leikmaður vallarins af Sky Sports enda var hann út um allt á vellinum. Rice var afar mikilvægur bæði varnarlega og í sóknaruppbyggingu.

„Þetta er algjör sturlun. Við erum búnir að standa okkur frábærlega í Meistaradeildinni á tímabilinu, það er eitthvað sem má ekki vanmeta. Við höfum fullan rétt til að fagna á þessari stundu, þetta er mikilvægasta keppni heims í félagsliðaboltanum og ótrúleg upplifun.

„Við vissum hvað var undir í þessum leik og við náðum að sigra. Þegar við tókum forystuna þá vissi ég að við myndum vinna leikinn."


Hinn 19 ára gamli Myles Lewis-Skelly sem er vinstri bakvörður að upplagi byrjaði á miðjunni í kvöld. Hann byrjaði á miðjunni gegn Fulham um helgina og stóð sig feykilega vel svo Mikel Arteta þjálfari valdi hann aftur í byrjunarliðið gegn Atlético.

„Við vitum allir hvað Myles kann. Hann spilaði mikið af leikjum í fyrra og þjálfarinn er búinn að vera harður við hann á bakvið tjöldin. Hann fékk ekki að spila í einhvern tíma en hann er að leggja gríðarlega mikla vinnu á sig. Hann mætir alltaf snemma í líkamsræktarsalinn og það kemur mér ekki á óvart að sjá hann standa sig í þessum leikjum.

„Við erum svo stoltir af þeim stað sem við erum á í dag miðað við hvar við vorum fyrir nokkrum árum. Þjálfarinn er búinn að vera stórkostlegur og við erum í mjög góðri stöðu þegar það er minna en mánuður eftir af tímabilinu. Við eigum risastóran leik á sunnudaginn."


Arsenal heimsækir West Ham, uppeldisfélag Rice, um helgina.

„Ég væri ekki sá sem ég er án West Ham. Félagið gaf mér tækifæri þegar Chelsea vildi ekki gera það. Mér finnst leiðinlegt að sjá stöðuna þeirra í deildinni en svona er fótboltinn og ég hef verk að vinna á sunnudaginn. Við verðum að vinna þennan leik í titilbaráttunni."

   05.05.2026 20:54
Meistaradeildin: Arsenal í úrslitaleikinn eftir 20 ára bið

Slapp
banner
banner
banner