Arsenal hefur áhuga á Fernandes - Man Utd fylgist með Hjulmand - Valverde vill vera áfram hjá Real Madrid en City fylgist með
Bestur í Mjólkurbikarnum - Kominn tími á bikarævintýri í Mosfellsbæ
Rúnar Páll: Við hefðum getað skorað fleiri mörk
Fékk rautt í hálfleik: Mér fannst ég ekki vera of aggressívur
Jói Kalli tekur ábyrgð: Eitt að tapa leik en annað á þennan hátt
Nenad eftir sigur á KA: Auðvitað okkar besti leikur
Haddi ósáttur: Nenntum ekki að leggja okkur fram
Heimir Guðjóns maður leiksins: Það er geggjaður matur þannig ég hlakka til
„Er með Þórshjarta þannig það er gaman að vinna KA"
Viktor ósáttur á bekknum: Fór í hálfgert blackout
Damir svekktur: Vorum tíu sekúndum frá þessu
Lárusi Orra létt: Okkur var heldur betur refsað í dag
Axel Óskar: Við erum miklu stærra lið samt
Nauðsynlegur sigur fyrir framtíð Jökuls? - „Ég er raunverulega ekki að pæla í því“
„Hann er uppalinn strákur sem hefur lagt mikið á sig til þess að ná langt"
Jóhann Árni: Tilfinningar brutust út
Davíð Smári pirraður: Vorum einhvern veginn ekki tilbúnir í fightið
Óskar Hrafn vanur því að detta úr bikar: Lífið heldur áfram
Gunnar Heiðar spenntur: Þetta er nýi núllpunkturinn
Aron Baldvin: Vissum að við myndum fá bestu útgáfuna af þeim
Ólafur Ingi: Lokuðum búðinni eftir rauða spjaldið
   mið 06. maí 2026 19:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Systurnar svekktar - „Hann átti að láta okkur heyra það"
Kvenaboltinn
Amalía Árnadóttir
Amalía Árnadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Margrét Árnadóttir
Margrét Árnadóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA gerði 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni á heimavelli í Bestu deild kvenna í dag. Systurnar Amalía og Margrét Árnadætur skoruðu mörk Þórs/KA í seinni hálfleik eftir að liðið var 2-0 undir í hálfleik.

Andrea Mist Pálsdóttir skoraði bæði mörk Stjörnunnar beint úr hornspyrnu.

Lestu um leikinn: Þór/KA 2 -  2 Stjarnan

„Þetta var leikur tveggja hálfleika. Mörkin sem við fáum á okkur eru ekki merkileg, það er mjög skítt að fá á sig tvö mörk beint úr horni," sagði Margrét.

„Við eigum að gera betur á móti þeim," bætti Amalía við.

Margrét komst í dauðafæri í blálokin eftir sendingu frá Amalíu.

„Ég á að setja sigurmark þarna. Hefði sennilega haft tíma til að taka snertingu og leggja hann í hornið. Þetta er eitthvað sem ég verð að klára næst," sagði Margrét.

Þær fengu hárblásarann frá Aðalsteini Jóhanni Friðrikssyni, þjálfara liðsins, í hálfleik.

„Við þurftum að rífa okkur í gang. Hann átti að láta okkur heyra það, við áttum það skilið," sagði Amalía.

„Það var góð ræða í hálfleik," bætti Margrét við.
Slapp
banner
banner
banner