Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 13:41
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
U16: Bjarki Garðars með tvennu gegn Finnum
Mynd: KSÍ
U16 ára lið drengja gerði í dag 3-3 jafntefli við Írland í síðasta leik sínum á þróunarmóti UEFA í Finnlandi í dag.

Stjörnumaðurinn Bjarki Hrafn Garðarsson skoraði tvö mörk í leiknum og Eyjamaðurinn Emil Gautason eitt.

Bjarki, sem skoraði þrjú mörk á mótinu, er sterklega orðaður við þýska stórliðið Dortmund. Hann er sonur Garðars Jóhannssonar sem lék á sínum ferli átta A-landsleiki.

Þar sem leikurinn endaði með jafntefli var farið í vítaspyrnukeppni sem Írland vann 5-4.

Ísland spilaði þrjá leiki á mótinu, gerði tvö jafntefli gegn Írlandi og Finnlandi og tapaði gegn Lettum.
Slapp
banner
banner