Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   fim 07. maí 2026 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Evrópudeildin í dag - Kaldir Villa menn fá heita Forest menn í heimsókn
Mynd: EPA
Það kemur í ljós í kvöld hvaða lið mætast í úrslitum Evrópudeildarinnar.

Freiburg fær Braga í heimsókn en Braga vann heimaleikinn 2-1 í síðustu viku.

Þá er enskur slagur á Villa Park í Birmingham þar sem Aston Villa fær Nottingham Forest í heimsókn. Forest vann fyrri leikinn 1-0.

Forest hefur unnið fimm leiki í röð í öllum keppnum og er taplaust í síðustu tíu leikjum en Villa hefur tapað þremur leikjum í röð.

fimmtudagur 7. maí

Evrópudeildin
19:00 Freiburg - Braga (1-2)
19:00 Aston Villa - Nott. Forest (0-1)
Slapp
banner
banner
banner