Vincent Kompany, stjóri Bayern, var alls ekki ánægður með dómgæsluna í viðureign liðsins gegn PSG í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Bayern féll úr leik eftir 1-1 jafntefli í Munchen í kvöld en fyrri leiknum lauk með 5-4 sigri PSG í stórkostlegum leik.
Bayern féll úr leik eftir 1-1 jafntefli í Munchen í kvöld en fyrri leiknum lauk með 5-4 sigri PSG í stórkostlegum leik.
„Við þurfum að skoða ákvarðanir dómaranna í nokkrum þáttum í báðum leikjunum. Það er aldrei afsökun en þetta skiptir máli. Alltof margar ákvarðanir voru gegn okkur en við reyndum gegn frábæru PSG liði," sagði Kompany.
Kompany var sérstaklega ósáttur með tvö atvik í leiknum í kvöld. Hann vildi fá vítaspyrnu þegar Vitinha sparkaði boltanum í hendina á Joao Neves og svo vildi hann sjá Nuno Mendes fá sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir að fá boltann í hendina.
„Hann er með hendina á lofti en af því boltinn kemur frá liðsfélaga er þetta ekki víti, notið bara almenna skynsemi, þetta er fáránlegt," sagði Kompany.
„Ég hélt að hann hafi verið að gefa honum sitt annað gula spjald en svo hætti hann við af því hann fattaði að hann hafi þegar gefið honum spjald. Hann vildi ekki reka hann af velli fyrir þetta svo hann hætti við. Ég sé ekki Laimer snerta boltann með hendinni en þeir segja að hann hafi gert það."



