Aston Villa og Nottingham Forest mætast á morgun í seinni undanúrslitaleik liðanna í Evrópudeildinni. Forest leiðir 1-0 í einvíginu.
Belgíski miðjumaðurinn Amadou Onana gat ekki æft í dag og Unai Emery, stjóri Villa, staðfesti á fréttamannafundi í dag að hann yrði ekki með í leiknum.
Belgíski miðjumaðurinn Amadou Onana gat ekki æft í dag og Unai Emery, stjóri Villa, staðfesti á fréttamannafundi í dag að hann yrði ekki með í leiknum.
„Við vitum hversu taugatrekkjandi þessir leikir geta verið, sérstaklega á heimavelli. Við þurfum að halda yfirvegun. Við þurfum að fara út og framkvæma það sem við plönum," segir Emery um leikinn á morgun.
Villa hefur átt öflugt tímabil og er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
„Í upphafi tímabils, eftir fimm umferðir í deildinni og áður en við spiluðum í Evrópudeildinni hafði ég áhyggjur af því hvernig við myndum enda tímabilið. En að vera þar sem við erum í deildinni og vera í undanúrslitum Evrópudeildarinnar er ekkert annað en stórkostlegt."




