Bayern þarf tveggja marka sigur á PSG til að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu
Hugtakið faðir tími (e. Father time) er notað yfir íþróttafólk þegar það er komið á aldur og það styttist í endalok ferilsins. Hinn fertugi Manuel Neuer er sem stendur í harðri baráttu við faðir tíma.
Segja má að LeBron James og barátta hans við faðir tíma hafi tekið fyrirsagnirnar til þessa. LeBron er orðinn 41 árs gamall en er enn einn besti leikmaður NBA-deildarinnar í körfubolta. Það hefur minna farið fyrir baráttu markvarðarins Neuer sem fagnaði fertugsafmæli sínu í mars síðastliðnum.
Fyrirliðinn Neuer er enn í lykilhlutverki hjá Þýskalands-meisturum Bayern München sem stefna án efa á þrennuna í ár. Til þess að það gangi upp þarf Neuer að rifja upp gamla takta, líkt og hann gerði í fyrri leik Bayern gegn Real Madríd í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Neuer var hreint út sagt magnaður í 2-1 sigri Bayern á Bernabéu í Madríd. Hann varði samtals níu skot og kom í veg fyrir 1.05 mark ef prevented goals tölfræðin er skoðuð.
Það sama verður hins vegar ekki sagt um frammistöðu hans í seinni leiknum sem Bayern vann þó 4-3 og þar með einvígið 6-4. Í kvöld mætir Bayern svo ríkjandi Evrópumeisturum París Saint-Germain í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Bæjarar eru undir í einvíginu eftir að PSG vann fyrri leik liðanna 5-4 í París. Leikurinn var án efa einn skemmtilegasti fótboltaleikur síðari ára en það eru engar líkur að Neuer hafi verið ánægður með eigin frammistöðu. Neuer varði ekki skot og fékk á sig fjögur mörk þrátt fyrir að PSG hafi aðeins skapað sér færi upp á 1.9 í xG (vænt mörk).
Reynsluboltinn fékk svo frí í síðasta deildarleik Bayern en Vincent Kompany, þjálfari liðsins, hefur verið duglegur að bekkja Neuer eftir stóra leiki í Meistaradeildinni. Til að mynda sat hann á bekknum í deildarleiknum eftir sigurinn á Real í Bæjaralandi en hélt svo hreinu gegn Bayer Leverkusen í undanúrslitum þýsku bikarkeppninnar í leiknum þar á eftir.
Samningur Manuel Neuer rennur út í sumar en þessi fertugi markvörður hefur ekki enn gefið út hvort hanskarnir fari upp í hillu eða ekki. Slæm frammistaða í kvöld gæti gert það að verkum að maðurinn sem breytti því hvernig við horfum á markverði kalli þetta gott og grýti hönskunum upp í hillu.
Góð frammistaða gæti hins vegar gert það að verkum að Julian Nagelsmann hringi í sinn fyrrum lærisvein og fái hann til að taka landsliðshanskana af hillunni fyrir HM sem fram fer í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada í sumar.
Runólfur Trausti Þórhallsson er menntaður markmannsþjálfari og mun birta vikulega pistla tengda markvörslu.


