Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 11:36
Kári Snorrason
Neymar og sonur Robinho búnir að ná sáttum - „Ég fór yfir strikið“
Mynd: EPA
Neymar og Robinho Jr., sonur fyrrum leikmannsins Robinho, lentu saman á æfingu Santos og sakaði sá yngri Neymar um líkamlegt og andlegt ofbeldi.

Samkvæmt Robinho Jr. þá átti Neymar að hafa látið móðgandi ummæli falla ásamt því að hafa fellt og slegið leikmanninn á æfingunni.

Föruneyti Robinho Jr. sendi Santos formlega kvörtun vegna hegðunar Neymars og í kjölfarið rannsakaði félagið málið.

„Svona hlutir gerast í fótbolta. Þetta átti að vera bara á milli okkar. Það varð misskilningur á æfingu, viðbrögð hjá mér þar sem ég gekk fór yfir strikið.

En strax eftir að þetta gerðist baðst ég afsökunar, við ræddum saman í búningsklefanum og náðum sáttum,“
sagði Neymar við ESPN í Brasilíu eftir leik Santos í nótt þar sem Neymar skoraði eina mark liðsins í 1-1 jafntefli.




Slapp
banner
banner
banner
banner