Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 14:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rodri fer í myndatöku - Býst við Grímsa í næsta leik
Rodri borinn af velli í fyrri hálfleik.
Rodri borinn af velli í fyrri hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Hallgrímur Mar skoraði sigurmarkið gegn Þór úr vítaspyrnu.
Hallgrímur Mar skoraði sigurmarkið gegn Þór úr vítaspyrnu.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
Rodri, miðjumaður KA, var borinn af velli í leik liðsins gegn Þór á laugardag. Hann meiddist á hné og bíður eftir því að komast í myndatöku.

Lestu um leikinn: Þór 0 -  1 KA

„Hann bólgnaði daginn eftir, hann verður allavega ekki með í næsta leik, er að bíða efir myndatöku. Ég veit ekki hvort þetta sé alvarlegt, vonandi ekki, ef ég ætti að giska þá myndi ég halda tvær vikur," segir Hallgrímur Jónasson sem er þjálfari KA.

En hvernig er staðan á Hallgrími Mar, Grímsa, sem sagðist eiginlega ekki hafa æft fyrir síðasta leik?

„Hann var á æfingum með okkur í síðustu viku, en tók ekki fullan þátt. Hann tók verkjalyf og spilaði leikinn, ég er rólegur með hann næstu daga og svo reikna ég með því að hann verði 100% klár. Hann er með eymsli í mjöðminni, hefur verið tæpur. Hann er bara búinn að byrja tvo leiki í sumar, við eigum hann því svolítið inni. Ég reikna með því að hann verði orðinn góður í næsta leik."

„Ásgeir Sigurgeirsson (hné) og Hrannar Björn Steingrímsson (hásin) eru frá í lengri tíma. Svo er spurning með Rodri,"
segir Haddi.

Framundan hjá KA er heimaleikur gegn ÍBV næsta sunnudag.
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 5 5 0 0 22 - 9 +13 15
2.    Víkingur R. 5 4 1 0 13 - 4 +9 13
3.    Breiðablik 5 3 2 0 8 - 2 +6 11
4.    Fram 5 3 1 1 15 - 9 +6 10
5.    Valur 5 3 0 2 11 - 9 +2 9
6.    Stjarnan 5 2 0 3 11 - 13 -2 6
7.    Þór 5 2 0 3 5 - 11 -6 6
8.    ÍA 5 1 2 2 6 - 10 -4 5
9.    KA 5 1 1 3 5 - 8 -3 4
10.    Keflavík 5 1 1 3 6 - 10 -4 4
11.    FH 5 0 1 4 8 - 15 -7 1
12.    ÍBV 5 0 1 4 6 - 16 -10 1
Slapp
banner
banner
banner
banner