Enski varnarmaðurinn Ben Mee hefur tilkynnt að skórnir séu komnir á hilluna.
Mee er 36 ára gamall en hann gekk til liðs við Sheffield United frá Brentford síðasta sumar. Hann spilaði 15 leiki í Championship deildinni.
Mee er 36 ára gamall en hann gekk til liðs við Sheffield United frá Brentford síðasta sumar. Hann spilaði 15 leiki í Championship deildinni.
Hann ólst upp hjá Man City og spilaði einn leik í deildabikarnum tímabilið 2010/11. Hann er þekktastur fyrir tímann sinn hjá Burnley þar sem hann spilaði 376 leiki yfir ellefu tímabil.
Hann var liðsfélagi Jóhanns Berg Guðmundssonar hjá Burnley frá 2016-2022.


