Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Lærlingar Inzaghi setja pressu á Ronaldo og félaga
Mynd: Al Hilal
Mynd: EPA
Al-Khaleej 1 - 2 Al-Hilal
1-0 Joshua King ('11)
1-1 Sergej Milinkovic-Savic ('34)
1-2 Sultan Mandash ('79)

Lærlingar Simone Inzaghi í stjörnum prýddu liði Al-Hilal lögðu Al-Khaleej að velli í efstu deild í Sádi-Arabíu.

Fyrrum úrvalsdeildarleikmaðurinn Joshua King tók forystuna fyrir heimamenn á elleftu mínútu en Al-Hilal sýndi mikla yfirburði og skoraði Sergej Milinkovic-Savic jöfnunarmark.

Staðan var 1-1 í hálfleik og stjórnuðu gestirnir áfram ferðinni í síðari hálfleik. Sultan Mandash kom boltanum í netið á 79. mínútu og reyndist það sigurmark leiksins, lokatölur 1-2.

Al-Hilal setur pressu á Cristiano Ronaldo og félaga í liði Al-Nassr með þessum sigri.

Al-Nassr er með tveggja stiga forystu þegar þrjár umferðir eru eftir af titilbaráttunni.

Theo Hernández, Rúben Neves, Malcom, Marcos Leonardo og Yassine Bounou voru meðal byrjunarliðsmanna Al-Hilal í sigrinum og kom Karim Benzema inn af bekknum á 87. mínútu.

Benzema kom boltanum í netið en markið ekki dæmt gilt eftir athugun í VAR-herberginu.

Al-Hilal er enn taplaust á deildartímabilinu en er þrátt fyrir það í öðru sæti.

Liðið datt afar óvænt úr leik í 16-liða úrslitum asísku Meistaradeildarinnar í apríl gegn Al-Sadd frá Katar, en Inzaghi er þekktur fyrir að hafa komið Inter í úrslitaleik Meistaradeild Evrópu tvisvar sinnum á þremur árum.
Slapp
banner
banner
banner