Það voru tveir Íslendingar sem voru í byrjunarliðum í leikjum dagsins í Asíu.
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn og skoraði í vítaspyrnukeppni er Al-Gharafa tryggði sér þátttökurétt í úrslitaleik bikarsins í Katar.
Al-Gharafa gerði markalaust jafntefli við Al-Wakra í undanúrslitum og vann 3-2 í vítaspyrnukeppni. Luis Alberto, fyrrum leikmaður Liverpool, Sevilla og Lazio, lék allan leikinn í liði Al-Wakra en klúðraði af vítapunktinum.
Al-Gharafa mætir annað hvort Al-Sadd eða Al-Duhail í úrslitaleiknum.
Hólmbert Aron Friðjónsson lék þá allan leikinn er Gwangju steinlá gegn Jeonbuk í efstu deild í Suður-Kóreu.
Gwangju er á botni deildarinnar, með 6 stig eftir 12 umferðir.
Al-Wakra 0 - 0 Al-Gharafa
2-3 eftir vítaspyrnukeppni
Jeonbuk 4 - 0 Gwangju



