Hinn 18 ára gamli Mikey Moore hlaut nafnbótina besti ungi leikmaður tímabilsins í efstu deild í Skotlandi.
Moore er hjá Rangers á láni frá Tottenham og skoraði hann 6 mörk og gaf 2 stoðsendingar í 28 deildarleikjum með Rangers.
Moore er samningsbundinn Tottenham til 2030 en hann þykir gríðarlega mikið efni og hefur verið lykilmaður upp unglingalandslið Englands.
Hann leikur sem kantmaður að upplagi og hefur skorað 28 mörk í 42 landsleikjum.


