Kantmaðurinn Anthony Gordon er eftirsóttur af stórveldum víðsvegar um Evrópu.
FC Bayern hefur verið sterklega orðað við Gordon en ensk úrvalsdeildarfélög á borð við Liverpool, Arsenal og Chelsea hafa einnig verið nefnd til sögunnar.
Nú eru Spánarmeistarar Barcelona búnir að bætast við kappið eftir að umboðsmenn Gordon voru myndaðir á fundi með Deco, yfirmanni fótboltamála hjá Barcelona.
Talið er að Barca sé tilbúið að skila Marcus Rashford til Manchester United án þess að festa kaup á honum en þá vantar félaginu nýjan kantmann til að fullkomna hópinn. Gordon er talinn vera ofarlega á óskalistanum.
Newcastle vill fá 80 milljónir punda fyrir Gordon, sem samsvara rúmlega 90 milljónum evra.
Gordon er 25 ára gamall og með fjögur ár eftir af samningi sínum við Newcastle.
02.05.2026 11:40
Líklegt að Newcastle selji Gordon í sumar




