Liverpool sýnir Senesi áhuga - Napoli kaupir Höjlund - Ensk félög sýna Conceicao áhuga
   mið 06. maí 2026 23:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enrique fékk snemmbúna afmælisgjöf - „Elskum að pressa"
Mynd: EPA
PSG er komið í úrslit Meistaradeildarinnar annað árið í röð eftir að hafa slegið Bayern úr leik eftir magnað einvígi í undanúrslitum.

Luis Enrique, stjóri PSG, var í skýjunum eftir leikinn en hann fagnar 56 ára afmælinu sínu á föstudaginn.

„Vörnin var betri en sóknin. Það var jákvætt að sjá karakterinn sem við sýndum gegn liði eins og Bayern. Við erum svo ánægðir að komast í úrslit Meistaradeildarinnar annað árið í röð," sagði Enrique.

„Þeir spila fótbolta á hæsta stigi. Liðin eru lík, við elskum að pressa hátt á vellinum. Ég á afmæli eftir tvo daga, ég er mjög ánægður. Við erum komnir á næsta stig keppninnar, í úrslit Meistaradeildarinnar. Við viljum gefa stuðningsmönnum svona gjöf."
Slapp
banner