Veislan er hafin í Munchen þar sem PSG er í heimsókn hjá Bayern í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar.
Það var algjör veisla í París þar sem leiknum lauk með 5-4 sigri PSG. Ousmane Dembele setti tóninn strax á þriðju mínútu í kvöld þegar hann kom PSG yfir og í tveggja marka forystu í einvíginu.
Það var algjör veisla í París þar sem leiknum lauk með 5-4 sigri PSG. Ousmane Dembele setti tóninn strax á þriðju mínútu í kvöld þegar hann kom PSG yfir og í tveggja marka forystu í einvíginu.
Khvicha Kvaratskhelia átti sendingu út í teiginn og Dembele skaut fast yfir Manuel Neuer.
„Dömur mínar og herrar, þetta er að gerast aftur. Stórkostleg sókn hjá PSG, þeir eru að setja tóninn og leikmenn Bayern virðast slegnir. Ég verð svekktur ef annað hvort liðið nær ekki tveggja stafa markatölu samanlagt," sagði Sam Blitz hjá Sky Sports.
Sjáðu markið hér


