Alisson efstur á lista Juventus - Emery á blaði hjá Real Madrid - Foden framlengir við City
   þri 05. maí 2026 15:06
Kári Snorrason
Flugeldar trufluðu nætursvefn leikmanna Atletico
Úr fyrri viðureign liðanna.
Úr fyrri viðureign liðanna.
Mynd: EPA
Arsenal tekur á móti Atletico Madrid í kvöld á Emirates í seinni viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli.

Stuðningsmenn Arsenal létu til sín taka í nótt þegar flugeldum var skotið upp fyrir utan hótel Atletico Madrid í Shoreditch hverfinu í London.

Samkvæmt spænskum miðlum var flugeldunum skotið upp þegar klukkan var að ganga tvö í nótt. Þar kemur einnig fram að nokkrir leikmenn Atletico hafi átt erfitt með svefn eftir lætin.

Atletico Madrid hefur lagt fram formlega kvörtun til UEFA vegna málsins. Arsenal kvartaði einnig til UEFA fyrir fyrri undanúrslitaleik liðanna í síðustu viku.

Sú kvörtun sneri að lengd grassins á Metropolitano vellinum, en Barcelona hafði jafnframt kvartað undan því sama í átta liða úrslitum.


Slapp
banner
banner
banner