Rashford ekki í áætlunum Man Utd - Tekur Mourinho aftur við Real? - Arsenal, Barcelona og Man City hafa áhuga á Enzo
   fim 07. maí 2026 13:48
Elvar Geir Magnússon
127 handteknir í fagnaðarlátum í París
Mynd: EPA
Mikil læti brutust út í fagnaðarlátum í París í gærkvöldi, eftir að Paris Saint-Germain sló Bayern München út og tryggði sér sæti í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Alls voru 127 handteknir á Parísarsvæðinu en ellefu særðust, þar af einn alvarlega.

Eftir 1-1 jafntefli Bayern München og PSG þusti fólk út á götur til að fagna samanlögðum 6-5 sigri Parísarliðsins.

Sósíalistinn Emmanuel Grégoire, nýr borgarstjóri Parísar, tók þátt í fagnaðarlátunum.

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar verður milli Arsenal og PSG í Búdapest þann 30. maí.
Slapp
banner
banner
banner