Guðrún Arnardóttir (1995) fór af velli snemma leiks þegar Hammarby og Häcken mættust í seinni úrslitaleik Evrópubikarsins. Häcken hafði betur í því einvígi.
Landsliðskonan er lykilkona í liði Hammarby og hún verður ekki með þegar Hammarby tekur á móti Uppsala í sænsku deildinni í dag.
Landsliðskonan er lykilkona í liði Hammarby og hún verður ekki með þegar Hammarby tekur á móti Uppsala í sænsku deildinni í dag.
Staðan á varnarmanninum í dag er betri en hún hafði þorað að vona eftir að hafa meiðst og hún vonast til þess að geta spilað þegar Hammarby heimsækir Djurgården í næstu viku. Eftir það er svo bikarúrslitaleikur gegn Häcken um aðra helgi.
Hammarby er með sex stig eftir tvo leiki í deildinni. Guðrún gekk í raðir félagsins í byrjun árs eftir að hafa spilað með Braga seinni hluta síðasta árs.
Guðrún á að baki 61 A-landsleik. Landsliðið spilar næst í byrjun næsta mánaðar gegn Úkraínu og Spáni í undankeppni HM.


