PSG er með 1-0 forystu gegn Bayern í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar þegar seinni hálfleikur er nýhafinn. Franska liðið er 6-4 samanlagt yfir í einvíginu.
Bæjarar voru mjög ósáttir þegar Nuno Mendes fékk boltann í höndina eftir hálftíma leik en dómarinn dæmdi á Konrad Laimer í aðdragandanum.
Bæjarar voru mjög ósáttir þegar Nuno Mendes fékk boltann í höndina eftir hálftíma leik en dómarinn dæmdi á Konrad Laimer í aðdragandanum.
Mendes var á gulu spjaldi og var heppinn að sleppa þarna.
„Nuno Mendes er heppinn að vera enn á vellinum eftir að hafa séð endursýningar. Það var skelfilegur dómur að dæma hendi á Laimer í aðdragandanum þar sem boltinn fór í magann. Þetta er annað gula spjaldið á Mendes allan daginn," sagði Lewis Jones hjá Sky Sports.
Þá vildi Bayern fá vítaspyrnu þegar Vitinha sparkaði boltanum í hendina á Joao Neves. Sky Sports vekur athygli á reglu sem segir að ekki eigi að refsa ef boltinn fer óvart í höndina eftir að samherji sparkaði boltanum.

