Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 10:30
Elvar Geir Magnússon
Kasper Schmeichel gæti hafa spilað sinn síðasta leik
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Markvörðurinn Kasper Schmeichel þarf að fara í aðgerð á öxl og segist mögulega hafa leikið sinn síðasta fótboltaleik.

Danski landsliðsmarkvörðurinn er 39 ára og lék síðast 22. febrúar. hann missir af umspili danska liðsins um sæti á HM en liðið mætir Norður-Makedóníu í undanúrslitum þann 26. mars.

Þessi fyrrum markvörður Leicester verður samningslaus hjá skoska félaginu Celtic eftir tímabilið en það mun taka hann um eitt ár að jafna sig eftir aðgerðina.

„Mögulega hef ég leikið minn síðasta fótboltaleik. Það er hrikaleg tilhugsun. Ég hef verið fótboltamaður síðan ég fæddist," segir Schmeichel.


Athugasemdir
banner
banner