Þau rosalegu tíðindi bárust í gærkvöldi að afríska fótboltasambandið hefði ógilt úrslit í úrslitaleik Afríkukeppninnar og svipt Senegal titlinum.
Senegal vann 1-0 sigur gegn Marokkó í úrslitaleiknum 18. janúar og eftir sigurinn fögnuðu um milljón manns sigrinum úti á götum höfuðborgarinnar Dakar
En Marokkó hefur nú verið dæmdur 3-0 sigur og er því Afríkumeistari. Mikil reiði ríkir í Senegal yfir þessari niðurstöðu og í yfirlýsingu senegalska fótboltasambandsins er hún sögð „ósanngjörn, fordæmalaus og óásættanleg“.

Senegalar segja að niðurstaðan sé vanvirðing við afrískan fótbolta og hún verði kærð til CAS, Alþjóða íþróttadómstólsins í Lausanne en það er æðsta dómstig íþrótta í heiminum.
Af hverju var Senegal svipt titlinum
Brahim Diaz, leikmaður Marokkó, féll niður í teignum í blálokin í úrslitaleiknum. Dómarinn hélt leiknum áfram en að lokum dæmdi VAR vítaspyrnu. Það var vægast sagt mikið ósætti hjá Senegal með atvikið og Pape Thiaw, þjálfari Senegal, skipaði leikmönnum liðsins að fara inn í klefa í mótmælaskyni.
Marokkó kærði úrslit leiksins og áfrýjunarnefnd afríska sambandsins hefur komist að þeirri niðurstöðu að hegðun senegalska liðsins hafi brotið gegn reglugerðum. Með því að yfirgefa leikinn eigi að dæma liðinu tap og Marokkó hefur verið dæmdur 3-0 sigur.
Athugasemdir