Belgi orðaður við Man Utd - Óskalisti Alonso ef hann tekur við Liverpool - Juventus veitir Arsenal samkeppni um Goretzka
   mið 18. mars 2026 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úrslitaleikur Bose bikarsins á laugardag - Vegleg verðlaun
Mynd: Ofar
Úrslitaleikur Bose bikarsins fer fram laugardaginn 21. mars og verður spilað á Samsungvellinum í Garðabæ. Leikur Stjörnunnar og Víkings mun hefjast klukkan 16:00.

Víkingur er ríkjandi meistari eftir að hafa unnið KR í úrslitaleik síðasta móts. Mótið er haldið í 14. sinn í ár og var riðlakeppnin spiluð fyrir áramót.

Tilkynning mótshaldara
Leikir mótsins hafa verið afar skemmtilegir á að horfa. Liðin hafa mætt gríðarlega vel undirbúin og sett tóninn strax í upphafi tímabilsins. Bose bikarinn hefur enn á ný sannað sig sem spennandi og mikilvægur hluti af íslenska fótboltaárinu.

Það er því sannkölluð úrslitastund þegar tvö sterk lið mætast í leik þar sem allt er undir. Áhorfendur geta búist við alvöru fótboltaveislu á laugardaginn og er stefnan á að umgjörð leiksins verði eins og um leik í Bestu deildinni sé að ræða.

Glæsileg verðlaun
Sigurvegarar Bose bikarsins fá að launum Bose S1 Pro + hátalara sem hentar vel fyrir aðstæður með allt að 150 manns og því geggjaður til þess að peppa hópinn fyrir leiki og byggja upp stemmningu.

Maður leiksins fær að launum glæsleg Bose QC ultra heyrnartól. Þau eru endurhönnuð frá grunni með nýrri tegund noise cancellation tækni sem virkar líka á hljóðneman sem gerir þau frábær á opnum vinnustöðum.

„14. ár BOSE bikarsins hefur verið afar skemmtilegt og mótið hefur þegar sannað sig sem frábær upphitun fyrir komandi keppnistímabil. Það er einnig augljóst að liðin taka mótið alvarlega og leggja mikið upp úr því að ná árangri. Ég er sérstaklega spenntur fyrir úrslitaleiknum. Þegar tvö svona sterk lið mætast myndast alltaf sérstök stemning og það er ljóst að mikið er undir," segir Ágúst Þór Gylfason sem er vörustjóri hjá Ofar.
Athugasemdir
banner
banner