Það komu nokkrir Íslendingar við sögu í leikjum dagsins bæði í karla og kvennaflokki.
Í karlaflokki var Óttar Magnús Karlsson á sínum stað í fremstu víglínu hjá Renate sem lagði varalið Inter að velli í Serie C deildinni.
Óttar spilaði í rúma klukkustund og vann Renate 2-1 til að klifra upp í sjötta sæti deildarinnar. Renate er í harðri umspilsbaráttu um sæti í Serie B deildinni á næstu leiktíð.
Kristófer Jónsson lék allan leikinn með Triestina sem tapaði á heimavelli gegn Cittadella. Triestina er í afar slæmri stöðu á botni deildarinnar eftir að hafa fengið dæmd 23 mínusstig vegna reglubrota. Liðið er aðeins með 4 stig - 25 stigum frá öruggu sæti þegar tíu umferðir eru eftir.
Kolbeinn Birgir Finnsson var þá í byrjunarliði Vålerenga sem vann æfingaleik gegn KFUM Oslo og fóru nokkrir aðrir æfingaleikir fram hjá Íslendingaliðum.
Í kvennaflokki var Andrea Rut Bjarnadóttir í byrjunarliði Anderlecht sem lagði stórlið Club Brugge að velli og er aðeins einu stigi á eftir toppliði OH Leuven, sem á þó tvo leiki til góða. Anderlecht er að eiga gott tímabil og er með 45 stig eftir 19 umferðir.
Í ítalska boltanum var Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir ekki með Parma vegna meiðsla er liðið gerði markalaust jafntefli við Napoli.
Svo fóru æfingaleikir fram hjá Íslendingaliðum og var keppt í sænska bikarnum.
Renate 2 - 1 Inter U23
Triestina 2 - 3 Cittadella
Vålerenga 1 - 0 KFUM Oslo
Rosengård 1 - 4 Ariana
Esbjerg 0 - 1 Vendsyssel
Kolding 4 - 1 Middelfart
Club Brugge 2 - 3 Anderlecht
Napoli 0 - 0 Parma
Lilleström 1 - 5 Vålerenga
Vittsjö 2 - 2 Växjö
Brann 0 - 3 North Carolina Courage
Gdansk 1 - 0 Czarni Sosnowiec
Athugasemdir



