Franska titilbaráttan hefur verið afar spennandi síðustu vikur eftir að spútnik lið Lens tók toppsætið af ríkjandi meisturum Paris Saint-Germain í síðustu umferð.
Í dag mættu bæði liðin til leiks og tókst PSG að endurheimta toppsætið eftir að Lens tapaði á heimavelli gegn AS Monaco.
Lens komst í tveggja marka forystu gegn Monaco en fékk þrjú mörk á sig á tíu mínútna kafla í síðari hálfleik til að tapa 2-3. Það er hreint með ólíkindum að Lens hafi ekki tekist að skora fleiri mörk miðað við færin sem liðið skapaði í síðari hálfleiknum, en Philipp Kohn átti meistaralega markvörslu á milli stanga Monaco til að tryggja sigurinn.
Odsonne Edouard og Florian Thauvin skoruðu mörk Lens en Folarin Balogun og Denis Zakaria jöfnuðu metin fyrir gestina áður en Ansu Fati gerði sigurmarkið.
Monaco er með 34 stig eftir 23 umferðir í baráttu um evrópusæti, heilum 18 stigum á eftir Lens í titilbaráttunni.
Lens er með 52 stig og er tveimur stigum á eftir PSG sem vann þægilegan sigur á heimavelli gegn Metz í kvöld.
Désiré Doué, Bradley Barcola og Goncalo Ramos skoruðu mörkin í 3-0 sigri gegn botnliði deildarinnar.
Toulouse og Paris FC skildu að lokum jöfn, 1-1.
Lens 2 - 3 Monaco
1-0 Odsonne Edouard ('3)
2-0 Florian Thauvin ('56)
2-1 Folarin Balogun ('62)
2-2 Denis Zakaria ('70)
2-3 Ansu Fati ('72)
PSG 3 - 0 Metz
1-0 Desire Doue ('3)
2-0 Bradley Barcola ('45+3)
3-0 Goncalo Ramos ('77)
Toulouse 1 - 1 Paris FC
0-1 Marshall Munetsi ('39)
1-1 Julian Vignolo ('87)
Athugasemdir




