Matues Mane einn eftirsóttasti bitinn - Everton vill Delap - Tekur Keane við Palace?
   lau 21. febrúar 2026 18:15
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Valur rúllaði yfir Aftureldingu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur 4 - 0 Afturelding
1-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('33)
2-0 Lúkas Logi Heimisson ('68)
3-0 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('72)
4-0 Birkir Heimisson ('81)

Valur tók á móti Aftureldingu í A-deild Lengjubikarsins í dag og leiddi 1-0 í leikhlé eftir mark frá Tryggva Hrafni Haraldssyni.

Flóðgáttirnar opnuðust svo um miðbik seinni hálfleiks og urðu lokatölur 4-0.

Tryggvi Hrafn skoraði annað mark og komust Birkir Heimisson og Lúkas Logi Heimisson einnig á blað.

Valur er með sex stig eftir tvær umferðir, jafn mörg stig og Afturelding sem hefur þó leikið einum leik aukalega.
Athugasemdir
banner
banner
banner