Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 21. febrúar 2026 22:28
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn: Sörloth leiddi öruggan endurkomusigur
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Síðustu leikjum dagsins er lokið í efstu deild spænska boltans þar sem Atlético Madrid tók á móti Espanyol og lenti undir snemma leiks.

Jofre Carreras skoraði eftir skyndisókn strax á sjöttu mínútu en heimamenn í Madríd stjórnuðu leiknum og skoraði Norðmaðurinn stóri Alexander Sörloth jöfnunarmark af stuttu færi eftir flotta fyrirgjöf frá Marcos Llorente.

Staðan var 1-1 í leikhlé og skiptu lærlingar Diego Simeone um gír í upphafi seinni hálfleiks. Giuliano Simeone, sonur Diego, skoraði eftir laglega sókn þar sem Antoine Griezmann gaf fallega úrslitasendingu skömmu áður en Ademola Lookman tvöfaldaði forystuna.

Lookman tengdi þar við fyrrum liðsfélaga sinn í Atalanta til að skora, bakvörðinn Matteo Ruggeri sem vann fyrsta skallaboltann eftir hornspyrnu til að leggja upp fyrir Lookman sem kláraði með að skutla sér á boltann og stanga hann í netið.

Sörloth setti fjórða mark Atlético með skalla eftir fyrirgjöf frá Ruggeri á 72. mínútu og minnkaði Edu Expósito muninn fyrir gestina með frábæru skoti eftir að boltinn barst til hans fyrir utan vítateig í kjölfar hornspyrnu, svo lokatölur urðu 4-2.

Atlético er í fjórða sæti La Liga með 48 stig eftir 25 umferðir, sex stigum fyrir ofan Real Betis sem gerði jafntefli við Rayo Vallecano í dag.

Hinn þaulreyndi Cédric Bakambu skoraði eftir rúman stundarfjórðung en Isi Palazón jafnaði metin fyrir leikhlé.

Betis var sterkari aðilinn en tókst ekki að knýja fram sigur svo lokatölur urðu 1-1.

Fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Antony, Pablo Fornals, Marc Roca og Diego Llorente voru í byrjunarliði Betis á meðan Cucho Hernández kom inn af bekknum.

Atletico Madrid 4 - 2 Espanyol
0-1 Jofre Carreras ('6 )
1-1 Alexander Sorloth ('21 )
2-1 Giuliano Simeone ('49 )
3-1 Ademola Lookman ('58 )
4-1 Alexander Sorloth ('72 )
4-2 Edu Exposito ('80 )

Betis 1 - 1 Rayo Vallecano
1-0 Cedric Bakambu ('16 )
1-1 Isi Palazon ('42 )
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 27 22 1 4 72 26 +46 67
2 Real Madrid 27 20 3 4 56 23 +33 63
3 Villarreal 28 17 4 7 51 33 +18 55
4 Atletico Madrid 27 16 6 5 46 25 +21 54
5 Betis 27 11 10 6 42 34 +8 43
6 Celta 27 10 10 7 37 30 +7 40
7 Espanyol 27 10 7 10 34 40 -6 37
8 Real Sociedad 27 9 8 10 40 41 -1 35
9 Getafe 27 10 5 12 23 29 -6 35
10 Athletic 28 10 5 13 30 40 -10 35
11 Osasuna 27 9 7 11 32 32 0 34
12 Girona 28 8 10 10 31 43 -12 34
13 Valencia 27 8 8 11 30 41 -11 32
14 Vallecano 27 7 10 10 27 33 -6 31
15 Sevilla 27 8 7 12 35 42 -7 31
16 Alaves 28 7 7 14 26 38 -12 28
17 Elche 27 5 11 11 35 41 -6 26
18 Mallorca 27 6 7 14 31 44 -13 25
19 Levante 27 5 7 15 29 45 -16 22
20 Oviedo 27 3 9 15 17 44 -27 18
Athugasemdir
banner
banner