Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. febrúar 2026 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Howe ánægður: Erum á leið í rétta átt
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Eddie Howe þjálfari Newcastle var stoltur af framlagi leikmanna sinna í 2-1 tapi gegn Manchester City er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Öll mörk leiksins komu á þrettán mínútna kafla í fyrri hálfleik þar sem Nico O'Reilly skoraði bæði mörk Man City. Þetta var fyrsti tapleikur Newcastle eftir þrjá sigurleiki í röð á erfiðum útivöllum, þar sem lærlingar Howe sigruðu gegn Tottenham, Aston Villa og Qarabag áður en þeir heimsóttu Manchester.

„Miðað við alla orkuna sem við höfum lagt í leikina síðustu vikur þá var þetta góð frammistaða. Þetta var ekki nægilega gott en við gáfum þeim alvöru leik, við vorum jafningjar á vellinum. Við vorum inni í leiknum allan tímann en það er ekki nógu gott. Ég er aðallega vonsvikinn með varnarleikinn í mörkunum þeirra," sagði Howe eftir lokaflautið.

„Strákarnir höfðu allan tímann trú á því að geta fengið eitthvað úr þessum leik og (Harvey) Barnes komst nálægt því með skotinu sínu undir lokin, en hann (Gianluigi Donnarumma) gerði vel að verja.

„Strákarnir voru hugrakkir í dag, þeir djöfluðust í andstæðingunum og gáfu ekkert eftir. Við spiluðum maður á mann og það gekk vel. Það sem okkur vantaði var herslumunurinn á lokaþriðjungnum, það vantaði upp á gæðin í ákvarðanatöku leikmanna og úrslitasendingum. Við komumst nokkrum sinnum í mjög góðar stöður sem við áttum að gera betur úr.

„Ég er ánægður með frammistöðuna í þessum leik og síðustu leikjum á undan. Svo lengi sem við höldum áfram að spila með þessum hætti þá er ég ánægður, úrslitin skipta ekki öllu máli. Við erum á leið í rétta átt."


Newcastle er óvænt aðeins um miðja deild með 36 stig eftir 27 umferðir, heilum níu stigum frá baráttunni um meistaradeildarsæti fyrir næstu leiktíð.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 30 20 7 3 59 22 +37 67
2 Man City 29 18 6 5 59 27 +32 60
3 Man Utd 29 14 9 6 51 40 +11 51
4 Aston Villa 29 15 6 8 39 34 +5 51
5 Chelsea 29 13 9 7 53 34 +19 48
6 Liverpool 29 14 6 9 48 39 +9 48
7 Brentford 29 13 5 11 44 40 +4 44
8 Everton 29 12 7 10 34 33 +1 43
9 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
10 Sunderland 30 10 11 9 30 34 -4 41
11 Fulham 29 12 4 13 40 43 -3 40
12 Newcastle 29 11 6 12 42 43 -1 39
13 Brighton 30 9 11 10 38 36 +2 38
14 Crystal Palace 29 10 8 11 33 35 -2 38
15 Leeds 29 7 10 12 37 48 -11 31
16 Tottenham 29 7 8 14 39 46 -7 29
17 Nott. Forest 29 7 7 15 28 43 -15 28
18 West Ham 29 7 7 15 35 54 -19 28
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 30 3 7 20 22 52 -30 16
Athugasemdir
banner