Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 22. febrúar 2026 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Geta toppbaráttuliðin haldið í við Inter?
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Það fara fjórir leikir fram í efstu deild ítalska boltans í dag þar sem fjörið hefst í Genúa í hádeginu, þegar Mikael Egill Ellertsson og félagar taka á móti Torino.

Genoa er þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið, með 24 stig eftir 25 umferðir. Þremur stigum á eftir Torino.

Toppbaráttuliðin mæta svo til leiks síðar í dag og þurfa þau á sigrum að halda til að eiga einhverja von á að halda í við topplið Inter sem er búið að vinna sjö leiki í röð.

Ítalíumeistarar Napoli sitja í þriðja sæti og heimsækja Atalanta í erfiðum slag áður en AC Milan, sem er í öðru sæti, fær fallbaráttulið Parma í heimsókn. Parma er þó búið að vinna tvo í röð og virðist sigla nokkuð lygnan sjó átta stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Lokaleikur dagsins fer fram í Róm. Lærlingar Gian Piero Gasperini taka þar á móti nýliðum Cremonese, sem eru í fallbaráttu.

Leikir dagsins
11:30 Genoa - Torino
14:00 Atalanta - Napoli
17:00 Milan - Parma
19:45 Roma - Cremonese
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 23 1 5 65 22 +43 70
2 Milan 28 17 9 2 44 20 +24 60
3 Napoli 28 17 5 6 43 29 +14 56
4 Como 28 14 9 5 46 21 +25 51
5 Roma 28 16 3 9 38 21 +17 51
6 Juventus 28 14 8 6 50 28 +22 50
7 Atalanta 29 12 10 7 39 27 +12 46
8 Bologna 28 11 6 11 37 34 +3 39
9 Sassuolo 28 11 5 12 35 38 -3 38
10 Lazio 28 9 10 9 28 28 0 37
11 Udinese 28 10 6 12 33 41 -8 36
12 Parma 28 8 10 10 20 32 -12 34
13 Genoa 28 7 9 12 34 40 -6 30
14 Cagliari 28 7 9 12 30 38 -8 30
15 Torino 28 8 6 14 28 49 -21 30
16 Lecce 28 7 6 15 20 37 -17 27
17 Fiorentina 28 5 10 13 30 42 -12 25
18 Cremonese 28 5 9 14 22 40 -18 24
19 Verona 28 3 9 16 22 49 -27 18
20 Pisa 28 1 12 15 20 48 -28 15
Athugasemdir
banner