Nunez gæti snúið aftur til Englands - Liverpool undirbýr stórt tilboð í Gordon - Tekur Southgate við Palace?
   sun 22. febrúar 2026 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Rosenior: Fjögur töpuð stig í tveimur leikjum
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Liam Rosenior þjálfari Chelsea var svekktur eftir jafntefli á heimavelli gegn fallbaráttuliði Burnley í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Chelsea komst yfir á fjórðu mínútu og leiddi 1-0 allt þar til í uppbótartíma, þegar Zian Flemming gerði jöfnunarmark með fríum skalla eftir hornspyrnu á 93. mínútu.

   21.02.2026 23:46
Rosenior kennir einum leikmanni um jöfnunarmarkið


„Við áttum að vinna leikinn, við nýttum færin okkar ekki nægilega vel. Við komumst líka í mikið af góðum stöðum sem varð ekkert úr. Það vantaði alltaf annað hvort upp á úrslitasendinguna eða nýtinguna," sagði Rosenior sem var svo spurður út í rauða spjaldið sem Wesley Fofana fékk á 72. mínútu.

„Mér fannst þetta vera óheppilegt rautt spjald en við áttum að sigla þessu í höfn þrátt fyrir það. Bestu liðin klára andstæðinga sína og sýna engan miskunn. Þau nýta færin sín. Ef þú getur ekki nýtt færin þín þá verðuru að halda hreinu. Við höldum ekki nógu oft hreinu."

Þetta var annað jafnteflið í röð hjá Chelsea í ensku úrvalsdeildinni eftir 2-2 jafntefli gegn nýliðum Leeds í síðustu umferð. Báðir leikirnir voru á heimavelli.

„Þetta eru fjögur töpuð stig í tveimur leikjum og eitthvað sem átti ekki að gerast. Við áttum að vinna báða þessa leiki og við verðum að laga ákveðna hluti í okkar leik sem fyrst. Við getum ekki kennt Wesley (Fofana) um þetta, þetta er okkur að kenna sem liðsheild útaf því að við stóðum okkur ekki nægilega vel. Við vorum ekki nógu hættulegir í sóknarleiknum og stjórnuðum leiknum ekki nægilega vel. Ég vildi sjá okkur þjarma að andstæðingunum og skapa sókn eftir sókn en við spiluðum alltof öruggt með boltann.

„Það er pirrandi að missa tvo sigurleiki í röð niður í jafntefli á heimavelli. Það er mjög pirrandi. Þetta er ekki einhverjum einum einstaklingi að kenna."

Athugasemdir
banner
banner