Emil Atlason var í dag verðlaunaður fyrir það að vera markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar. Emil skoraði í sumar 17 mörk í 21 leik í Bestu deildinni með Stjörnunni.
„Þetta er mjög gaman, skemmtileg athöfn hérna og bara flott," sagði Emil þegar hann tók við verðlaunum í dag.
„Þetta er mjög gaman, skemmtileg athöfn hérna og bara flott," sagði Emil þegar hann tók við verðlaunum í dag.
Emil spilaði algjört lykihlutverk í liði Stjörnunnar sem náði þriðja sæti Bestu deildarinnar og fer því í Evrópukeppni á næstu leiktíð.
„Við náðum einhvern veginn að klóra okkur upp úr þessari holu sem við vorum komnir í og enduðum tímabilið í þriðja sæti sem er frábær árangur," segir Emil.
Jökull Elísabetarson tók við sem aðalþjálfari Stjörnunnar snemma á tímabilinu og var Emil mjög sáttur með það hvernig hann kom inn sem þjálfari liðsins.
„Hann er frábær og hann nálgast leikmenn sína á svo rosalega góðan þátt. Það er rými til þess að tala og tjá okkur, og við fáum mikið traust hjá honum."
Emil var að eiga sitt besta tímabil á ferlinum en núna eru farnar í gang sögusagnir um að Íslands- og bikarmeistarar Víkings vilji fá hann í sínar raðir. Emil á eitt ár eftir af samningi sínum við Stjörnuna, en hann er núna í viðræðum um nýjan samning.
„Ég hef ekki talað við Víkinga eða neitt þannig. Ég er samningsbundinn Stjörnunni og er í viðræðum við þá," sagði Emil og bætti við að það væri vilji sinn að spila áfram í Garðabænum.
Hægt er að sjá allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.
07.10.2023 12:39
Úrvalslið ársins í Bestu deildinni 2023

























