Aston Villa fylgist með Mbaye - Coventry og Leeds berjast um Openda - Gordon á leið til Bayern - Vilja Trafford sem arftaka Martínez
Bryndís Rut hreinskilin eftir stórt tap: „Markmiðið er að halda okkur í deildinni“
Keflavík rúllaði yfir Tindastól – „Geggjað að taka svona sigur“
Hetjan Hallgrímur æfði ekkert í vikunni: Ákvað að svara þegar ég skoraði
Haddi: Róar taugarnar hjá mér
Siggi Höskulds lýsir vonbrigðunum: Nei það er ekki hægt
Gunnar Heiðar ósáttur eftir sigur: Er ekkert eðlilega óánægður með þetta
Nenad: Ég ætla ekki að tjá mig
Jóhann Birnir ósáttur með rauða spjaldið - „Fannst hann bara sækja brotið"
Venni: Ég var aldrei í rónni
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
   þri 25. apríl 2023 22:19
Stefán Marteinn Ólafsson
Pétur Péturs: Ég elska vinstri fótar leikmenn
Kvenaboltinn
Pétur Pétursson þjálfari Vals
Pétur Pétursson þjálfari Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var sannkallaður stórslagur strax í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna þegar Íslands- og bikarmeistarar Vals tóku á móti Breiðablik á Origo vellinum.

Báðum liðum er spáð góðu gengi í sumar og bar leikurinn merki þess efnis í kvöld þar sem ekkert var gefið eftir í miklum baráttuleik þar sem Valskonur höfðu betur með einu marki gegn engu.


Lestu um leikinn: Valur 1 -  0 Breiðablik

„Það er alltaf erfitt að byrja fyrsta leik og oft bara í byrjun móts og skiptir miklu máli að vinna leikina og ég tala nú ekki um að spila á móti liði eins og Breiðablik sem er frábært lið og bara mjög ánægður með það." Sagði Pétur Pétursson þjálfari Vals eftir leikinn í kvöld.

Báðum liðum er spáð velgengni í sumar og baráttu um toppsætið en Pétur var þó fljótur að minna á að það vinnst ekkert í apríl þrátt fyrir sterkan sigur í fyrstu umferð.

„Jájá en þú vinnur ekkert í apríl, ég held að það sé ekkert málið en það er gott að vinna."

Þetta var mikill baráttuleikur og ljóst að bæði lið voru að leggja allt í þetta og var Pétur gríðarlega ánægður með að sjá vinstri fótar manneskju skora sigurmarkið.

„Það var mjög gott og að sjá vinsti fótar manneskju skora var líka æðislegt. Ég elska vinstri fótar leikmenn og það er bara einn í liðinnu." sagði Pétur hress.

Nánar er rætt við Pétur Péturs í spilaranum hér fyrir ofan. 


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Slapp
banner
banner