Stones gæti farið aftur til Everton - Salah tekur Tyrkland fram yfir Sádi-Arabíu - Vicario á förum frá Tottenham
Elfar Árni: Spennandi að sjá hvort einhver nýr verði á bekknum í næsta leik
Modoumatarr frá Stokkhólmi: Rólegt líf á Húsavík.
Maggi svekktur: Þeir eru með hörkuhóp
Davíð Smári: Svo sem hægt að kenna dómaranum um
Damir: Gekk betur þegar við föttuðum það
„Smá högg í vetur þegar ég var ein af þeim elstu 22 ára"
„Sigurmark í lokin gerir þetta ennþá sætara“
Mist lagði upp sigurmarkið - „Þetta var nákvæm hreinsun“
Hannah: Rúsínan í pylsuendanum
Arna Sif: Gerist eiginlega ekki verra
Hólmar: Hefur mikla þýðingu fyrir alla í kringum Val
Aron Sig: Þess vegna ertu í þessu
Hemmi: Umræðan var óþarflega neikvæð og leiðinleg
Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
Best í Mjólkurbikarnum: Barðist um milljónir á Netflix
Óskar Smári: Þær geta fokking djöflast þessar stelpur
Birna Jóhanns: Við náðum svo að setja þetta mark í lokin
„Hefði verið extra sætt fyrir hana að ná að setja hann“
Matthías: Ég er stoltur að hafa lifað það af
Agla María fagnaði 250 leikja áfanga með sigri - „Stór áfangi fyrir mig“
   lau 26. ágúst 2023 17:11
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Maggi: Þetta er allt í okkar höndum
Lengjudeildin
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar
Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding tók á móti Leikni í 19. umferð Lengjudeildarinnar þar sem Afturelding leitaðist eftir að ná þriggja stiga forskoti sínu til baka eftir að Skagamenn unnu sinn leik í gær. Það var þó ekki niðurstaðan og endaði leikurinn 0-2 fyrir Leiknismenn. Afturelding heldur toppsætinu þó en aðeins á markatölu.


Lestu um leikinn: Afturelding 0 -  2 Leiknir R.

Svekktur að sjálfsögðu að tapa leiknum“ sagði Magnús Már Einarsson, þjálfari Aftureldingar, eftir leikinn.

Mér fannst strákarnir byrja frábærlega. Þeir (Leiknir) skora í sinni fyrstu sókn og svo fannst mér við stjórna fyrri hálfleiknum og áttum að jafna leikinn. Svo skora þeir aftur úr sinni fyrstu sókn í seinni hálfleik og eftir það erum við líklegri. Auðvitað fá þeir færi úr skyndisóknum eftir að við erum byrjaðir að henda mönnum fram en fyrsta lagi svekktur að skora ekki“ hélt hann svo áfram. 

Aðspurður hvort hann hafi verið sáttur með frammistöðuna frá sínu liði segir hann:

Auðvitað ekki sáttur með að skora ekki en mér fannst við gera margt fínt í dag. Það vantaði á síðasta þriðjung, það vantaði meiri grimmd og að klára dæmið og að sjálfsögðu hefðum við líka átt að koma í veg fyrir þessi mörk þeirra. Sáttur með 70-80% en það vantaði restina.“

Eins og áður segir hangir Afturelding í toppsætinu á markatölu þegar þrjár umferðir eru eftir og má nokkurn veginn tala um þrjá úrslitaleiki sem eftir eru hjá Mosfellingum. Hvernig fer liðið inn í þessa leiki?

Við bara keyrum á það. Þetta er allt í okkar höndum, við þurfum að mæta í þessa leiki til að vinna þá og við vitum það. Við erum búnir að vera frábærir í sumar og við förum bara brattir í Grafarvoginn í næstu viku, fínpússum það sem mátti laga í þessum leik og við mætum grimmir með mikla trú.“

Viðtalið við Magga má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 


Slapp
banner
banner