Branthwaite, Zirkzee og Olise til Man Utd? - Potter til Hollands - Nunez til Barca og Osimhen til Chelsea
   mið 12. október 2016 06:00
Elvar Geir Magnússon
Þrír framlengja við Njarðvík
Stefán Birgir Jóhannesson.
Stefán Birgir Jóhannesson.
Mynd: Raggi Óla
Þeir Andri Fannar Freysson, Stefán Birgir Jóhannesson og Styrmir Gauti Fjeldsted hafa allir skrifað undir nýja tveggja ára samninga við Njarðvík.

Þeir eru allir vel þekktir innan okkar raða og leikið samtals 249 leiki með meistaraflokki Njarðvík og gert 39 mörk.

Andri Fannar og Styrmir Gauti eru uppaldir leikmenn hjá Njarðvík en Stefán Birgir hefur verið hjá félaginu síðan 2014 en hann kom frá Fram. Allir hafa þeir leikið stór hlutverk í liðinu undanfarin ár.

Þá skrifaði Óðinn Jóhannsson undir tveggja ára samning við Njarðvík en hann var að ganga upp úr 2. flokk félagsins. Óðinn á að baki 11 mótsleiki með meisaraflokki og gert 2 mörk.

Njarðvík hafnaði í 8. sæti 2. deildarinnar á liðnu tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner