Tottenham horfir í kringum sig - Man City ætlar að bjóða Foden nýjan samning - Schade á förum?
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
Cecilía Rán: Fannst við standa okkur ótrúlega vel
Óvænt í byrjunarliði Íslands - „Svo mikill heiður"
Steini Halldórs: Samkvæmt reglum á að stoppa leikinn
Jói Bjarna: Auðvitað finnst mér þetta erfitt og skrítið
Glódís Perla: Ef við viljum vera áfram í hæsta gæðaflokki þá verðum við að setja fjármagn í þetta
Guðrún: Komið alveg hálft ár síðan við hittumst síðast
Steini landsliðsþjálfari: Trú og hugrekki gegn heimsmeisturunum
Hlín Eiríks: Við leikmenn hefðum viljað hafa verkefni í síðasta glugga
   fim 05. febrúar 2026 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Gauti: Mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fór á reynslu til Brighton og átti kost á því að ganga í raðir félagsins.
Fór á reynslu til Brighton og átti kost á því að ganga í raðir félagsins.
Mynd: Úr einkasafni
Arnór Gauti er styrktarþjálfari Álftaness.
Arnór Gauti er styrktarþjálfari Álftaness.
Mynd: Aðsend
Í kjölfarið skoraði Sigurpáll Melberg, Spalli, sigurmark Aftureldingar.
Í kjölfarið skoraði Sigurpáll Melberg, Spalli, sigurmark Aftureldingar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var margt sem varð til þess að ég lagði skóna á hilluna, það var bæði áhugaleysi undir lokin og einnig það að maður fæddist ekki með þann líkama sem maður hefði viljað vera með. Það voru mikið af meiðslum, lítið brjósk eftir í hnénu og ökkla."

„Þetta snerist um að geta kannski farið á skíði eða gert eitthvað eftir ferilinn,"
segir Arnór Gauti Ragnarsson sem lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil. Hann varð 29 ára í gær.

Mosfellingurinn lék með Aftureldingu, ÍBV, Selfossi, Breiðabliki, Fylki og í Noregi á sínum ferli.

„Þetta var rýtingur eftir rýting oft á tíðum. Maður var byrjaður að komast af stað og þá blossuðu upp meiðsli. Ég var hættur að hafa þolinmæði fyrir því að ná mér heilum, koma með jákvætt hugarfar og vera svo skellt aftur niður á jörðina."

„Já og nei. Ég hefði auðvitað viljað breyta einhverju, ég fór ungur til Brighton og einhvern veginn segi nei við því. Sumarið 2025, það mun svíða mjög lengi. Svona átti minn ferill að vera, þannig maður verður að ganga sáttur frá borði."


Foreldrarnir sögðu nei við Brighton
Arnór Gauti þótti mjög efnilegur leikmaður. Hann lék á sínum tíma sex leiki fyrir yngri landsliðin, þar af fimm fyrir U21 árs landsliðið.

Árin 2014 og 2015 fór Arnór Gauti, þá 17 ára, á reynslu til enska félagsins Brighton og Reading. Honum bauðst að ganga í raðir Brighton, en tekin var ákvörðun um að gera það ekki. Af hverju?

„Ég sagði svo sem sagði ekki beinlínis nei, ég fór út og stend mig ótrúlega vel. Ég fer heim á föstudegi og átti að fara aftur út á mánudegi. Það eru eiginlega mamma og pabbi sem sögðu nei. Í hreinskilni þá held ég að ég hafi ekki verið tilbúinn andlega í að fara til Bretlands og vera í einhverju harki. Lítandi til baka þá væri ógeðslega gaman að hafa þetta undir beltinu, en maður væri ekki sú manneskja sem maður er í dag."

„Ég hef bara einu sinni rætt þetta við þau, og það var bara fyrir ári síðan. Ég er alls ekki eitthvað fúll út í þau, þetta var bara svona. Ég held að ég hefði kannski sagt nei líka."


Náði helsta markmiðinu og mun aldrei gleyma augnablikinu
Hvar var skemmtilegast að vera á ferlinum?

„Mitt helsta markmið á ferlinum var að komast upp í efstu deild með mínu liði Aftureldingu. Þegar það gerðist, eftir erfiða viku, ég mun aldrei gleyma lokaflautinu á Laugardalsvelli. Það var örugglega hápunkturinn. Ég var búinn að vera drepast í hnénu og kviðnum, en þegar ég gat náð mínu helsta markmiði, þá var engin spurning um annað en að ég myndi spila."

„Mig minnir að Goggi hafi skallað boltann niður og ég reyndi að troða honum á markið. Auðvitað var 'Self-made Spalli' á endanum og kom boltanum inn. Maður mun seint gleyma þessu,"
segir Arnór Gauti þegar hann rifjar upp sigurmarkið gegn Keflavík í úrslitum Lengjudeildarumspilsins 2024.
Íþróttir eru lífið
Hvað tekur við?

„Hellingur. Ég er að klára íþróttafræði núna í HR, er styrktarþjálfari Álftaness. Ég fékk traustið frá Kjartani Atla (Kjartanssyni) og er óendanlega þakklátur honum. Svo er stórt verkefni framundan með KKÍ. Ég er óvænt kominn á fullu í körfuboltann," segir Arnór Gauti og brosir.

„Framtíðin er í íþróttum, utan vallar. Ég er búinn að vera með puttann einhvern veginn í öllum íþróttum síðan að ég var ungur. Íþróttir eru lífið, það væri mjög erfitt að fara í eitthvað skrifstofustarf núna. Ég sakna klefans og maður vill vera í kringum strákana og að 'banterast'. Þetta er því fullkomin leið finnst mér."

Aðrir hápunktar
Fyrir utan Mosfellsbæ, hvar var skemmtilegast að vera á ferlinum?

„Það var frábært að fara með einum af mínum bestu vinum til Noregs (Arnór Gauti og Valgeir Svansson spiluðu með Hönefoss), það var ótrúlega skemmtilegur tími. En tíminn hjá Fylki og Breiðabliki stendur upp úr, hjá Breiðabliki enduðum við tvisvar í öðru sæti. Ég hefði verið til í að taka eitt tímabil í viðbót og ná Evrópuleik með þeim. Svo var klefinn hjá Fylki óaðfinnanlegur," segir Arnór Gauti.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Athugasemdir
banner