PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 12:03
Brynjar Ingi Erluson
Tímabilið búið og missir af HM
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brasilíski varnarmaðurinn Eder Militao verður ekki meira með Real Madrid á þessu tímabili og mun missa af heimsmeistaramótinu í sumar.

Miðvörðurinn meiddist í sigri Real Madrid á Deportivo Alaves og var upphaflega gert ráð fyrir að hann væri frá út tímabilið en myndi ná heimsmeistaramótinu.

Blaðamaðurinn Miguel Angel Diaz segir meiðslin verri en talið var í fyrstu og hann hafi meiðst aftur á sama vöðva og hélt honum frá keppni í fjóra mánuði.

Hann þarf að fara í aðgerð og verður hann frá næstu mánuði og ekki snúa aftur fyrr en í byrjun næstu leiktíðar.

Svakalegt högg fyrir Militao sem hefur aðeins spilað þrjá landsleiki á síðustu tveimur árum. Hann var fastamaður á Copa America árið 2024, en meiðsli eru stór ástæða fyrir því að hann hefur aðeins spilað 38 landsleiki á ferlinum.
Slapp
banner
banner
banner