PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
banner
   lau 25. apríl 2026 18:49
Sverrir Örn Einarsson
England: Eze sendi Arsenal á toppinn á ný
Eze fagnar marki sínu
Eze fagnar marki sínu
Mynd: EPA
Arsenal 1 - 0 Newcastle
1-0 Eberechi Eze ('9 )

Arsenal settist á ný í toppsæti Ensku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á Newcastle á Emirates leikvangnum í London nú í dag.

Heimamenn í Arsenal hófu leikinn af krafti og strax á 9.mínútu leiksins kom Eberechi Eze þeim yfir með góðu marki eftir frábærlega útfærða hornspyrnu.

Eftir að hornið var tekið stutt barst boltinn á Kai Havertz sem lagði boltann út á Eze sem var staðsettur á vítateigslínunni. Eze tók skotið viðstöðulaust með hægri fæti og sveigði boltann af miklu öryggi upp í fjærhornið.

Á 34. mínútu leiksins varð Arsenal fyrir áfalli er Kai Havertz þurfti að fara meiddur af velli. Hann virtist togna í nára eða aftan í læri og kom Viktor Gyökeres inn á í hans stað.

Á 75. mínútu leiksins fékk Newcastle gullið tækifæri til þess að jafna. Varamaðurinn Yoane Wissa fór þá illa að ráði sínu er hann skaut yfir markið af nokkuð stuttu færi eftir sendingu frá Nick Woltemade.

Fleiri mörk voru ekki skoruð á Emirates og tyllir Arsenal því sér á toppinn um stund með 73 stig en Manchester City fylgir fast á eftir með 70 og á auk þess leik til góða.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 22 7 5 64 26 +38 73
2 Man City 33 21 7 5 66 29 +37 70
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Liverpool 34 17 7 10 57 44 +13 58
5 Aston Villa 34 17 7 10 47 42 +5 58
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Bournemouth 34 11 16 7 52 52 0 49
8 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
9 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
10 Fulham 34 14 6 14 44 46 -2 48
11 Everton 34 13 8 13 41 41 0 47
12 Sunderland 34 12 10 12 36 45 -9 46
13 Crystal Palace 33 11 10 12 36 39 -3 43
14 Newcastle 34 12 6 16 46 50 -4 42
15 Leeds 34 9 13 12 44 51 -7 40
16 Nott. Forest 34 10 9 15 41 45 -4 39
17 West Ham 34 9 9 16 42 58 -16 36
18 Tottenham 34 8 10 16 43 53 -10 34
19 Burnley 34 4 8 22 34 68 -34 20
20 Wolves 34 3 8 23 24 62 -38 17
Slapp
banner
banner