PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Guðni Eiríks: Það er ekki tilfinningin sem ég fæ
Rúnar Páll: Við erum helvítis klaufar
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
   lau 25. apríl 2026 20:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Kvenaboltinn
Úr leiknum í dag.
Úr leiknum í dag.
Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net
„Þetta var þokkalegur leikur að flestu leyti, mér fannst við byrja hann nokkuð vel, fáum á okkur mark þar sem við gerðum hlutina ekki nægilega vel. Við vorum allan tímann inni í leiknum og mér fannst þetta liggja í loftinu lengst af í seinni, hafði minni áhyggjur af því að við myndum fá á okkur mark," segir Arna Sif Ásgrímsdóttir sem lék í dag sinn fyrsta deildarleik með Þór/KA síðan 2021.

Hún sneri aftur til Akureyrar eftir fjögur tímabil með Val. Heimakonur náðu að jafna leikinn undir lokin.

„Við náðum að setja eitt í restina, eigum við að segja að þetta hafi verið þokkalega sanngjarnt jafntefli."

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 -  1 FH

Varnarmaðurinn var spurð út í kraftleysi fram á við.

„Mér fannst við helst vera taka vondar ákvarðanir á síðasta þriðjungi. FH vill pressa og spila hátt sem gerir það að verkum að það er mikið pláss fyrir aftan þær. Mér fannst við oft pínu vera að gera bara eitthvað þegar við unnum boltann, hefðum getað haldið boltanum og refsað þeim. Það er helst ákvörðunatökur á síðasta þriðjungi sem voru ekki góðar," segir Arna Sif.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst

Slapp
banner
banner
banner