PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Fyrsti leikurinn með Þór/KA síðan 2021 - „Þokkalega sanngjarnt"
Gunnar Heiðar: Við erum allir í 'revenge mode'
Alli Jói: Hélt að vorbragur væri dautt hugtak í íslenskum fótbolta
Rændar vítaspyrnu - „Bara frábær markvarsla hjá útileikmanni Vals“
Brynjar Björn: Við fáum það í bakið, ekkert flóknara en það
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið“
„Hlýtur að vera ótrúlega erfitt að spá í þessa deild“
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Damir: Vonandi springur hann út hjá okkur
Ray virðir stigið: Vona að við getum bætt við einum reynslumeiri manni
Badu svekktur: Væri gott að fá góðan liðsstyrk
Anton Ingi: Töpuðum í raun fyrir sjálfum okkur
Stefán Þór: Ofboðslega skrýtinn leikur
Jóhann Birnir ekki rólegur fyrr en á 92. mínútu
Nenad: Svo í seinni hálfleik var það köld sturta
Maggi: Versta varnarframmistaða sem ég hef séð í mörg ár
Freyja Stefáns: Gott að vera strax búin að stimpla sig inn
Einar Guðna: Væri örugglega vælandi yfir þessu ef við hefðum ekki unnið
Skoraði í sínum 100. leik - „Við hefðum átt að vera löngu búnar að klára þetta“
„Óli Jó sagði það allaveganna alltaf, erfitt að byrja á nýliðum"
   lau 25. apríl 2026 19:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarki Baldvins: Held að samkvæmt ströngustu reglum megum við ekki vera þjálfarar
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Heilt yfir er ég nokkuð sáttur og held það væri frekja að biðja um eitthvað meira. Mér fannst við aðeins byrja á afturfótunum en eftir markið þeirra stigum við vel upp og heilt yfir fannst mér við fá betri færi en þeir, ég er kannski hlutdrægur með það," segir Bjarki Baldvinsson sem stýrði sínum fyrsta leik í Lengjudeildinni í dag.

Bjarki er þjálfari Völsungs sem tók á móti Leikni í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar í dag.

Lestu um leikinn: Völsungur 1 -  1 Leiknir R.

„Auðvitað hefði ég viljað vinna þetta í lokin, við fengum færin til þess. Við hefðum getað komið okkur í fleiri færi, en held það væri frekja að biðja um eitthvað mikið meira. Auðvitað viljum við taka þrjú stig á heimavelli," segir Bjarki.

Hann tók við liði Völsungs ásamt Elfari Árna Aðalsteinssyni nýlega og stýra þeir liðinu til bráðabirgða eftir að Patrick De Wilde var látinn fara. Hann var spurður út í undirbúninginn.

„Undirbúningurinn í siðustu viku var fínn en Leiknir er augljóslega búinn að spila 6-7 alvöru leiki. Við náðum að spila við Hött um síðustu helgi. Ég ætlaði ekki að vera í fótbolta í sumar og er bara að koma mér inn í þetta."

„Ég hef ekki hugmynd hversu lengi við verðum þjálfarar, ég held að samkvæmt ströngustu reglum megum við það ekki einu sinni,"
segir Bjarki.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum efst

Slapp
banner
banner
banner