Matthías Guðmundsson, þjálfari Valur, var ánægður með sigurinn á Grindavík/Njarðvík þrátt fyrir erfiðan leik á Hlíðarenda.
„Ég er náttúrulega mjög glaður. Þetta var svona thriller, stress leikur á móti Grindavík/Njarðvíkur liðinu sem voru bara hörkugóðar.“
Lestu um leikinn: Valur 2 - 1 Grindavík/Njarðvík
„Ég vissi að þær væru góðar en mér fannst við byrja leikinn eins og við værum alveg með þær en það snérist einhvern veginn með óvæntu marki. Eftir það einhvern vegin finnst mér við ekki ná taktinum til baka bara alveg restina af leiknum.“
Þrátt fyrir það hrósaði hann liðinu fyrir karakter og baráttu.
„Stemmingin er búin að vera bara frábær alveg frá fyrsta degi. Þetta eru stelpur sem ná vel saman og mér fannst þær sýna það í dag að þær eru tilbúnar að vinna fyrir hvor aðra. Þær gáfu allt í þennan leik og þessi leikur var gríðarlega erfiður.“
„Mér finnst það ekkert óeðlilegt að spila á móti nýliðum sem að eru með sjö útlendinga og eru að leggja fullt í þetta. Þetta kannski snýst líka bara um að ná í sigurinn. Hann má alveg vera torsóttur eins og hann var í dag en auðvitað líður mér betur ef við höfum stjórn á leiknum.“
Hann bendir á að liðið sé eitt það yngsta í deildinni.
„Þetta er náttúrulega gífurlega ungt lið, ég held að meðalaldurinn í dag sé bara í kringum tvítugt. Efast um að eitthvað lið hafi verið um tvítugt þessa fyrstu umferð.“
Hann segir hópinn sinn kláran.
„Hann er klár, það er ekki nema að það komi einhver rosaleg sending af einhverju sem við fréttum af.“
Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan























