PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
   lau 25. apríl 2026 13:17
Brynjar Ingi Erluson
„Ég myndi ekki selja Diomande“
Mynd: EPA
Oliver Mintzlaff, stjórnarformaður hjá RedBull, segist vona að Leipzig haldi vængmanninum Yan Diomande áfram á næsta tímabili.

Diomande er einn sá eftirsóttasti í heiminum eftir frábært tímabil með Leipzig sem er hans fyrsta hjá félaginu.

Hann hefur komið að 22 mörkum í öllum keppnum og eru stóru félögin farin að ræða við umboðsmann hans varðandi sumargluggann.

Mintzlaff, sem er framkvæmdastjóri hjá RedBull og stjórnarformaður eftirlitsnefndar félagsins, mælir ekki með því að selja hann í glugganum.

„Ef ég væri yfirmaður íþróttamála hjá Leipzig þá myndi ég ekki selja þennan unga leikmann sem hefur ekki einu sinni klárað heilt tímabil með okkur.“

„Ég myndi ekki selja hann, sama hver upphæðin er. Þetta er leikmaður sem getur haldið áfram að þróa feril sinn hér því hann er enn svo ungur og getur hækkað í verði.“

„Auðvitað vilja leikmenn líka taka næsta skref hjá öðrum félögum og Bayern er eitt þeirra, en líka félög á Englandi og Spáni.“

„En við verðum samt að búast við því að þó að leikmaður sé að skila inn frábærri frammistöðu hér að hann fari ekki eftir aðeins eitt ár hjá félaginu. Því verð ég að mæla með því við stjórnina að þeir haldi þessum leikmanni áfram á næsta tímabili og sjá hvernig hann þróast,“
sagði hann ennfremur.
Slapp
banner
banner