Stefán Teitur Þórðarson og hans menn í Hannover unnu öflugan 3-1 sigur á Karlsruher í þýsku B-deildinni í dag, en toppbaráttan lifir góðu lífi fyrir síðustu umferðir deildarinnar.
Skagamaðurinn hefur verið að spila vel síðan hann kom frá Preston í vetrarglugganum.
Hann var í byrjunarliðinu gegn Karlsruher og lék allan leikinn er Hannover hélt áfram góðu skriði sínu.
Það hefur ekki tapað leik síðan í mars og situr nú í 3. sæti með 57 stig, fjórum stigum frá toppnum og aðeins einu frá öruggu sæti í úrvalsdeildina þegar þrjár umferðir eru eftir.
Lúkas Petersson var í markinu hjá varaliði Hoffenheim sem tapaði fyrir Ingolstadt, 3-0, í þýsku C-deildinni. Lúkas og félagar eru í 15. sæti deildarinnar með 40 stig.
Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn með Horsens sem gerði 1-1 jafntefli við Hvidovre í meistarariðli dönsku B-deildarinnar. Horsens er í 5. sæti með 41 stig.
Brynjólfur Andersen Willumsson kom inn af bekknum hjá Groningen sem tapaði fyrir Feyenoord, 3-1. Groiningen er í 9. sæti með 42 stig, tveimur stigum frá því að komast í umspil um sæti í Sambandsdeildina.




